Sjóstöng
Sjóstangveiði er frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa. Bátar Sérferða eru mjög vel útbúnir til sjóstangveiða og njóta sjóstangveiðiferðir okkar sífellt
meiri vinsælda. Áhöfn Sérferða í sjóstangveiði samanstendur af reyndum leiðsögu- og veiðimönnum.
Ekki þarf að sækja langt út frá Reykjavíkurhöfn til að komast á gjöful fiskimið. Eftir u.þ.b. 15 til 20 mínútna siglingu erum við komin á fiskislóð. Veiðiferðin tekur 2.5–3 klukkustundir og eru sjóstangir og hlífðarfatnaður til staðar.
Áhöfnin getur gert aflann kláran fyrir farþega til að taka með sér heim, en einnig er hægt að grilla fiskinn strax um borð við mikinn fögnuð stoltra veiðimanna.
- Hægt er að panta sérsniðna sjóstangveiðiferð fyrir hópa en annars er farið daglega frá Reykjavíkurhöfn klukkan 18.00
