Lundaskoðun

Lundaskoðunarferðir eru sérgrein Sérferða enda hefur fyrirtækið farið slíkar ferðir frá árinu 1996. Ferðirnar eru vel þekktar og hafa notið vaxandi vinsælda gegnum árin. Siglingin út að Akurey tekur aðeins 15 mínútur. Siglt er eins nálægt eyjunni og kostur er hverju sinni og komast farþegar Sérferða nær eyjunni en aðrir vegna þess hve grunnt báturinn Skúlaskeið ristir. Siglt er umhverfis eyjuna í u.þ.b. 30 mínútur með sérfróðum leiðsögumanni sem fræðir gesti um lundann, varpið og aðrar sjáanlegar fuglategundir.

Sérferðir tryggja 100% skoðunarárangur í lundaskoðun.

Nálægðin við lundann, einstakur bátur og þjónustulipurt starfsfólk hefur gert Sérferðir að ráðandi ferðaþjónustufyrirtæki í lundaskoðun frá Reykjavík.