Um fyrirtækið

Sérferðir ehf. er ferðaþjónustufyrirtæki við gömlu höfnina í Reykjavík sem hóf starfsemi árið 1996. Í dag bjóða Sérferðir upp á hvalaskoðunarferðir, lundaskoðunarferðir, sjóstangveiði, hvataferðir og skólaferðir. Að auki er boðið upp á sérsniðnar veisluferðir með öllu inniföldu.

Markmið Sérferða ehf. er að vera ávallt framúrskarandi í íslenskri ferðaþjónustu. Við kappkostum að veita góða og persónulega þjónustu og leggjum sérstaka áherslu á öryggi viðskiptavina okkar.