Hvataferðir
Við hjá Sérferðum sérsníðum ferðir að ykkar óskum! Þið komið til okkar með hugmynd og við hjálpum ykkur að gera hana að veruleika.
Hvataferðir er annar skemmtilegur valkostur fyrir hópa, stóra sem smáa, sem innifelur t.d. sjóstangveiði og siglingu í Hvammsvík þar sem grillað er og leikið sér, eða góða blöndu af ferðum okkar með harmonikku- eða gítarspili og humarsúpu.
Dæmi um sérsniðnar ævintýraferðir okkar á sjó eru kvöldsiglingar, morgunverðarsiglingar, þriggja rétta veislur með einkakokki og siglingu um sundin, afmælispartí, gæsa- og steggjapartí sem og ýmis konar ljósmyndaferðir.
Markmið Sérferða ehf. er að vera ávallt framúrskarandi í íslenskri ferðaþjónustu. Við kappkostum að veita góða og persónulega þjónustu og leggjum sérstaka áherslu á öryggi viðskiptavina okkar.
Sérferðir eiga einn glæsilegasta farþegabát landsins, Rósina. Rósin var smíðuð af Trefjum í Hafnarfirði veturinn 2009/2010 og er hún ein sinnar tegundar á Íslandi. Rósin er sannkallaður lúxusbátur; hraðskreiður, öruggur og þægilegur og með fullkomið hljóð- og myndkerfi. Vert er að nefna að hann mengar lítið og mun minni hávaði fylgir þessum nýja báti en gengur og gerist. Báturinn er búinn nýjustu tækni í vélbúnaði. Rósin hefur leyfi fyrir 75 farþega og er báturinn einstaklega vel skipulagður, jafnt að innan sem utan. Innra rými Rósarinnar er einkar glæsilegt með góðum hljómgæðum, þráðlausu interneti, fjórum skjáum, bar og eldhúsi, sem og fínu salerni.
Rósin er tilvalin sem hvalaskoðunarbátur, sjóstangveiðibátur sem og farþegabátur í ýmis konar „sjóskutl“ t.d. á Arnarstapa eða á Akranes, en hún er oft á tíðum jafn snögg og rútur á sömu leið en um borð upplifa farþegar glæsilega siglingu í fallegu umhverfi í stað þess að ferðast í rútum.
