Hvalaskoðun

Með sérhönnuðum hvalaskoðunarbáti Sérferða er hvalaskoðun á Íslandi komin á annað plan! Vegna hraða bátsins bjóða Sérferðir nú upp á styttri ferðir en tíðkast hefur áður.

Sérferðir eru fljótari á hvalamiðin og vegna þessa fá farþegar lengri tíma í sjálfri hvalaskoðuninni. Upplifunin er skemmtileg, upplýsandi og þægileg, og vandamál eins og vélarhávaði og takmarkað útsýni frá innra rými heyra sögunni til.

Hvalaskoðunarferðir Sérferða eru tilvaldar bæði fyrir einstaklinga og hópa, allt að 70 manns hverju sinni. Við leggjum mikið upp úr því að leiðsögn í ferðum okkar sé fyrsta flokks.

Rósin